FH-ingar unnu býsna þægilegan sigur gegn HK á heimavelli í Pepsi Max-deildinni. Það voru tveir leikir að klárast í Pepsi Max-deildinni núna fyrir stuttu.
HK fékk reyndar dauðafæri í byrjun leiks en Gunnar Nielsen varði gríðarlega vel frá Martin Rauschenberg. Eftir hálftíma skoraði Steven Lennon og kom FH yfir og stuttu síðar bætti Þórir Jóhann Helgason við öðru marki.
Staðan var 2-0 í hálfleik eftir að hafa nýtt færin sín vel. Undir lok leiksins bætti Lennon svo við tveimur mörkum til viðbótar og fullkomnaði þrennu sína. „HAT TRICK HERO! Atli Guðna með sturlaða sendingu inn fyrir vörn HK-inga og þar kemst Lenny einn gegn Arnari og setur hann yfirvegað fram hjá Arnari í fjærhornið. Lenny með fimm mörk og eitt assist gegn HK á þessu tímabili takk fyrir" skrifaði Arnar Laufdal í beinni textalýsingu þegar FH komst í 4-0.
FH fer með þessum sigri upp í þriðja sæti með jafnmörg stig frá Breiðabliki og tveimur stigum á eftir Val, sem á leik til góða. HK er í níunda sæti með 11 stig, fimm stigum frá fallsvæðinu.
Hinn leikur dagsins í Pepsi Max-deild karla fór fram á Akureyri og þar fylgdi karlalið ÍA í fótspor kvennaliðsins frá því fyrr í dag. Kvennaliðið kom til baka úr stöðunni 2-0 gegn Gróttu og Skagastrákarnir komu til baka gegn KA eftir að hafa lent 2-0 undir.
KA-menn hafa verið gagnrýndir fyrir markaleysi og leiðinlegan fótbolta en þeir skoruðu tvö í dag og gerði Guðmundur Steinn Hafsteinsson bæði mörkin. Seinna markið kom úr vítaspyrnu í byrjun seinni hálfleiks.
Gísli Laxdal Unnarsson minnkaði muninn fyrir ÍA á 56. mínútu og það gaf liðinu auka kraft. Á 67. mínútu jafnaði ÍA þegar Daninn Mikkel Qvist gerði sjálfsmark eftir hornspyrnu.
Þrátt fyrir ágætis skemmtun á síðustu mínútum leiksins komu engin mörk og niðurstaðan 2-2 jafntefli. KA hefur leikið tíu leiki og er í tíunda sæti með níu stig. ÍA er með 14 stig í áttunda sæti.
FH 4 - 0 HK
1-0 Steven Lennon ('30 )
2-0 Þórir Jóhann Helgason ('34 )
3-0 Steven Lennon ('85 )
4-0 Steven Lennon ('90 )
Lestu nánar um leikinn
KA 2 - 2 ÍA
1-0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson ('28 )
2-0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson ('47 , víti)
2-1 Gísli Laxdal Unnarsson ('56 )
2-2 Mikkel Qvist ('67 , sjálfsmark)
Lestu nánar um leikinn
Athugasemdir




