Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   lau 22. ágúst 2020 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rudi Völler: Havertz verður ekki seldur með Covid afslætti
Roman Abramovich eigandi Chelsea er að gera merkilega hluti í sumar þar sem Frank Lampard og félagar hafa fengið grænt ljós á að styrkja leikmannahópinn til muna.

Chelsea er búið að eyða miklum pening í að kaupa Hakim Ziyech og Timo Werner en Ben Chilwell og Kai Havertz eru einnig taldir vera á leiðinni.

Mikið hefur verið rætt um yfirvofandi skipti Havertz frá Bayer Leverkusen en Rudi Völler, yfirmaður knattspyrnumála hjá Leverkusen, segir að leikmaðurinn verði ekki seldur með neinum Covid-19 afslætti.

„Í miðjum faraldri hafa verðmiðar margra leikmanna lækkað umtalsvert," sagði Völler.

„Þetta er þó ekki raunin þegar kemur að mögnuðum leikmönnum eins og Kai Havertz eða Jadon Sancho. Það er enginn Covid afsláttur á þeim."
Slapp
banner
banner