Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Rússland: Dramatískt tap CSKA á heimavelli
Hörður Björgvin og Arnór hafa verið samherjar hjá CSKA í nokkur ár.
Hörður Björgvin og Arnór hafa verið samherjar hjá CSKA í nokkur ár.
Mynd: Heimasíða CSKA
CSKA Moskva 1 - 2 Rubin Kazan
0-1 Soltmurad Bakaev ('37)
1-1 Nikola Vlasic ('39)
1-2 Denis Makarov ('94)

Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon voru í byrjunarliði CSKA Moskvu sem tapaði á heimavelli gegn Rubin Kazan í dag.

Leikurinn var nokkuð jafn þar sem liðin skiptust á að stýra leiknum. Gestirnir komust yfir á 37. mínútu með marki eftir skyndisókn en Nikola Vlasic jafnaði skömmu síðar. Vlasic skoraði frábært mark þar sem hann tók boltann viðstöðulaust á lofti eftir misheppnaða hreinsun í kjölfar hornspyrnu.

Bæði lið komust nálægt því að gera sigurmark alveg þar til á 94. mínútu, þegar hinn efnilegi Denis Makarov skoraði frábært mark eftir skyndisókn.

Þetta er annað tap CSKA í röð og er liðið með sex stig eftir fjórar umferðir.

Arnór spilaði fyrstu 70 mínúturnar og var tekinn af velli á 70. mínútu, í stöðunni 1-1.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner