Ætluðu að vinna tvöfalt
„Það var framið rán um hábjartan dag," sagði Mist Rúnarsdóttir í Heimavellinum í gær þegar hún talaði um leik Selfoss og Fylkis í Pepsi Max-deild kvenna um síðustu helgi.
Leikurinn endaði með 1-0 sigri Fylkis þar sem Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Árbæjarfélagsins, átti sannkallaðan stórleik.
Leikurinn endaði með 1-0 sigri Fylkis þar sem Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Árbæjarfélagsins, átti sannkallaðan stórleik.
Fylkir vann einnig 1-0 sigur á Selfossi í fyrstu umferðinni. „Þetta var rán, hitt var bara léttur stuldur," segir Mist um muninn á leiknum í fyrstu umferð og í tíundu umferð.
„Cecilía Rán setti í lás og ekki í fyrsta sinn. Selfyssingar, mér fannst þær spila vel út á velli," sagði Mist og tók Hulda undir það. „Þær gerðu það, héldu boltanum vel og voru að skapa sér dauðafæri. Maður skildi ekki hvernig boltinn fór ekki inn."
Þetta hefur verið saga Selfoss í sumar. Þær fengu landsliðskonurnar Önnu Björk Kristjánsdóttur og Dagnýju Brynjarsdóttur fyrir tímabilið, og ætlaði félagið sér að vinna tvöfalt í kvennaboltanum. Selfoss er í sjötta sæti með tíu stig, 17 stigum frá toppnum en aðeins þremur stigum frá fallsvæðinu. Liðið er enn með í bikarnum en mætir Íslandsmeisturum Vals þar í 8-liða úrslitum.
„Núna þurfa Selfyssingar, og þó fyrr hefði verið, að setja sér ný markmið. Þetta er orðið þungt og maður heyrir að það sé komin einhver kergja og þreyta í leikmannahópinn. Þetta er allt stöngin út," segir Mist.
„Þær hafa fengið á fæst mörk á eftir Val og Breiðabliki, en þær hafa líka skorað fæst á eftir KR og FH. Þær hafa bara skorað tíu mörk og það er ekki nóg ef þú ætlar að vera í toppbaráttu. Þær verða að setja sér ný markmið og rusla Íslandsmeistaradótinu til hliðar. Það þarf að núllstilla leikmenn svo það séu ekki alltaf vonbrigði," sagði Hulda.
„Mótið er hálfnað en þær eiga leik inni. Þær eru með tíu stig og eru í sjötta sæti. Fylkir er í þriðja sæti með 16 stig og það er kannski raunhæfa markmiðið úr því sem komið er. Þær þurfa líka að passa sig því Þróttur og KR, sem er í áttunda og níunda sæti, þær eru með sjö stig. Þær eru einum sigri frá því að jafna Selfoss."
Sjá einnig:
Alfreð: Held það sé ljóst að við verðum ekki Íslandsmeistarar
Athugasemdir




