Hermann Hreiðarsson hefur gert virkilega flotta hluti með Þrótti Vogum frá því hann tók við stjórn liðsins í síðasta mánuði.
Undir stjórn fyrrum landsliðsmannsins hefur Þróttur unnið fjóra leiki, gert tvö jafntefli og ekki enn tapað. Liðið er komið í bullandi toppbaráttu og svo virðist sem Þróttarar ætli að vera með í baráttunni um að fara upp.
„Þetta er bara þeirra eigin verkefni og þeir láta ekki gagnrýnisraddir á hvernig fótbolta þeir spila eða hversu leiðinlegir þeir eru hafa áhrif á sig enda á það ekkert að gera það. Þeir eru ógeðslega góðir í því að vera leiðinlegir inn á vellinum," sagði Sverrir Már Smárason í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni.
„Þeir fara svoleiðis í taugarnar á mönnum og ná hinu liðinu upp í rifrildi og hita, á meðan þeir halda sínu striki."
„Það sést svo langar leiðir að Hermann Hreiðarsson er að þjálfa þetta lið," sagði Óskar Smári Haraldsson. „Hann er bara að fá geðveikina upp í þessum strákum. Maður heyrir sögur um að hann sé að taka ungu strákana og segja við þá: 'Nú þarft þú að fara í tæklingar, nú þarft þú að fara að rífa kjaft'."
„Þú sérð bara afraksturinn; þeir eru ekki búnir að tapa frá því Hemmi tók við. Þeir eru tveimur stigum á eftir Haukum í öðru sæti og fjórum stigum frá toppnum, þeir eru búnir að blanda sér í bullandi toppbaráttu."
„Ég held að það sé lítið að fara að stoppa þá," sagði Sverrir en umræðuna má hlusta á í heild sinni hér að neðan.
Næsti leikur Þróttar er gegn Dalvík/Reyni á heimavelli á morgun. Það verður spiluð heil umferð í 2. deildinni á morgun.
Athugasemdir

