Það fóru fram tveir leikir í Pepsi Max-deild karla í gær. Breiðablik lagði Gróttu að velli og jafntefli var niðurstaðan í Árbænum þar sem Fylkir tók á móti Stjörnunni.
Úrslit gærkvöldsins:
Pepsi Max-deildin: Mikkelsen hetja Blika - Stjarnan gerði jafntefli
Úrslit gærkvöldsins:
Pepsi Max-deildin: Mikkelsen hetja Blika - Stjarnan gerði jafntefli
Thomas Mikkelsen fór úr skúrk í hetju fyrir Blika gegn Gróttu. Hann klúðraði vítapsyrnu á 26. mínútu en skoraði í annarri tilraun af vítapunktinum í síðari hálfleik.
Grótta spilaði einum færri frá 36. mínútu eftir að Kristófer Melsted fékk beint rautt spjald. „Hann var að komast einn í gegn og hann tekur hann niður. Líklega var þetta rautt spjald, en þá kalla ég líka eftir rauðu spjaldi á Blikana í fyrri hálfleik," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu, eftir tapið í gær.
Ásgeir Eyþórsson bjargaði stigi fyrir Fylki í Árbænum eftir að Hilmar Árni Halldórsson kom Stjörnunni yfir seint í fyrri hálfleiknum.
Hér að neðan má sjá myndskeið sem birt voru á Vísi frá leikjunum í gærkvöldi.
Grótta 0 - 1 Breiðablik
0-0 Thomas Mikkelsen ('26 , misnotað víti)
0-1 Thomas Mikkelsen ('73 , víti)
Rautt spjald: Kristófer Melsted, Grótta ('36)
Lestu nánar um leikinn hér
Fylkir 1 - 1 Stjarnan
0-1 Hilmar Árni Halldórsson ('37 )
1-1 Ásgeir Eyþórsson ('77 )
Lestu nánar um leikinn hér
Athugasemdir


