Aron Sigurðarson lék fyrstu 57 mínúturnar er St. Gilloise lagði Deinze að velli í fyrstu umferð belgísku B-deildarinnar í ár.
Aron og félagar komust yfir undir lok fyrri hálfleiks en í síðari hálfleik fékk Anas Hamzaoui sitt annað gula spjald og aðeins tíu leikmenn Gilloise eftir á vellinum.
Þjálfarinn gerði því taktíska skiptingu og tók Aron af velli fyrir varnarmanninn unga Siebe van der Heyden.
Tíu leikmenn St. Gilloise tvöfölduðu forystuna og stóðu uppi sem sigurvegarar.
Deinze 0 - 2 St. Gilloise
0-1 M. Fixelles ('41)
0-2 C. Nielsen ('69)
Rautt spjald: Anas Hamzaoui, St. Gilloise ('55)
Dagur Dan Þórhallsson kom þá við sögu í tapi Mjondalen gegn Rosenborg í efstu deild norska boltans.
Dagur fékk aðeins að spila nokkrar mínútur í uppbótartíma en lokatölur urðu 0-2. Mjondalen er í fallbaráttu á meðan Rosenborg er í fjórða sæti.
Í Slóvakíu tapaði Trnava á útivelli í toppslag gegn Dunajska Streda. Birkir Valur Jónsson var ónotaður varamaður hjá Trnava sem er í öðru sæti eftir tapið, með sjö stig eftir fjórar umferðir.
Dunajska Streda vermir toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga.
Nói Snæhólm Ólafsson og félagar í Senica áttu leik við Slovan Bratislava en honum frestað vegna Covid smita í liði Bratislava.
Mjondalen 0 - 2 Rosenborg
Dunajska Streda 2 - 1 Trnava
Kristófer Ingi Kristinsson og Ísak Snær Þorvaldsson voru þá ekki í leikmannahópum Grenoble og St. Mirren í dag.
Grenoble tapaði fyrir Rodez í frönsku B-deildinni á meðan St. Mirren gerði jafntefli við Ross County í skosku úrvalsdeildinni.
Rodez 1 - 0 Grenoble
St. Mirren 1 - 1 Ross County
Athugasemdir




