Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 10:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Suarez ekkert heyrt frá Barcelona um mögulega sölu
Luis Suarez, sóknarmaður Barcelona, segir að enginn frá spænska stórveldinu hafi tjáð sér það að félagið vilji losna við hann.

Sagan segir að Barcelona vilji losa sig við hinn 33 ára gamla Suarez sem á ár eftir af samningi sínum. Hinn áreiðanlegi Fabrizio Romano segir það alla vega og þá er hægt að treysta því að það sé satt.

Hann hefur meðal annars verið orðaður við Íslendingalið Al Arabi í Katar og við Ajax í Hollandi þar sem hann spilaði á árum áður.

„Það hefur enginn sagt mér að félagið vilji halda áfram án mín," sagði Suarez í samtali við El Pais. „Ef það er vilji fyrir því þá væri fínt ef sá sem stjórnar myndi tala beint við mig."

„Ég er búinn að vera hjá Barca í sex ár. Það er nægur tími svo þeir geti sagt það sem þeim finnst. Það væri betra ef þeir myndu segja mér ef að ég er einn af þeim sem þeir vilja losna við. Það á enn eftir að koma í ljós."

Suarez segist vilja vera hjá Barcelona svo lengi sem félagið vilji hafa hann.

Athugasemdir
banner
banner