Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 08:30
Victor Pálsson
Svekktur með að Ake hafi endað hjá Man City
Gordon Hill, fyrrum leikmaður Manchester United, er svekktur með það að félagið hafi misst af Nathan Ake, varnarmanni Bournemouth fyrr í sumar.

Ake hefur yfirgefið lið Bournemouth sem féll úr ensku úrvalsdeildinni og er genginn í raðir Manchester City fyrir 40 milljónir punda

Margir telja að United þurfi að styrkja vörnina fyrir næsta tímabil en enska deildin hefst þann 12. september næstkomandi.

Hill lék með United frá 1975 til 1978 og hefði hann viljað sjá Hollendinginn í treyju liðsins.

„Við þurfum ennþá annan hafsent. Harry Maguire er ekki fullmótaður og hann þarf á hjálp að halda," sagði Hill við hlaðvarpsþáttinn Talk of the Devils

„Nathan Ake hefðu verið góð kaup, sérstaklega á þessu verði en hann er nú farinn Vonandi getum við fengið jafnvel betri leikmann inn"

Athugasemdir
banner
banner