Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   lau 22. ágúst 2020 19:33
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Aron Jó kom við sögu í tapi
Mynd: Twitter
Sirius 3 - 1 Hammarby
0-1 Paulinho ('39)
1-1 M. Saeid ('85, víti)
2-1 S. Vecchia ('90, víti)
3-1 E. Andersson ('95)
Rautt spjald: Denis Widgren, Hammarby ('83)

Aron Jóhannsson hefur ekki verið að finna taktinn með Hammarby í efstu deild sænska boltans.

Hann kom inn á 66. mínútu gegn Sirius í dag en tókst ekki að skora er Hammarby tapaði.

Hammarby var 0-1 yfir þegar Aroni var skipt inn og héldu gestirnir forystunni þar til undir lokin þegar Denis Widgren lét reka sig af velli, tæpum 40 mínútum eftir að hafa verið skipt inná.

Widgren braut af sér innan teigs og fengu heimamenn í Sirius vítaspyrnu sem þeir jöfnuðu úr. Skömmu síðar komust þeir yfir með öðru marki úr vítaspyrnu og innsigluðu svo sigurinn með marki úr skyndisókn í uppbótartíma, þar sem markvörður Hammarby hafði farið fram í hornspyrnu.

Sirius er í fimmta sæti með 28 stig eftir sigurinn. Hammarby er með 24 stig, sex stigum frá Evrópusæti.
Slapp
banner
banner
banner