Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Kristrún Rut gerði jafntefli - Andrea Thorisson í tapliði
Kvenaboltinn
Mynd: Selfoss
Kristrún Rut Antonsdóttir lék fyrstu 60 mínúturnar í 1-1 jafntefli Mallbacken gegn Hammarby í B-deild sænska kvennaboltans.

Kristrún Rut, sem er uppalin hjá Selfossi, hefur komið við á undanförnum árum. Hún lék fyrir Chieti og Roma á Ítalíu og skipti svo yfir til Avaldsnes, Ballerup-Skovlunde og er nú loks komin til Mallbacken.

Tíu mínútum eftir að Kristrún var tekin útaf í stöðunni 1-0 gerðu gestirnir úr Hammarby jöfnunarmarkið. Mallbacken er um miðja deild með 18 stig eftir 12 umferðir. Hammarby er í þriðja sæti, fjórum stigum frá toppliðunum tveimur.

Mallbacken 1 - 1 Hammarby
1-0 S. Michael ('36)
1-1 J. Pedersen ('72)

Andrea Celeste Thorisson kom þá inn af bekknum er Kalmar tapaði fyrir toppliði AIK. Þetta var þriðja tap Kalmar í röð og er liðið með 17 stig.

Andrea kom inn í leikhléinu og fékk því að spila allan síðari hálfleikinn. Staðan hélst óbreytt meðan Andrea var inná vellinum og urðu lokatölur 3-2 fyrir AIK.

Andrea er 22 ára gömul og hefur spilað 23 leiki fyrir yngri landslið Íslands, auk eins leiks fyrir U19 lið Svíþjóðar.

AIK 3 - 2 Kalmar
1-0 A. Grabus ('10)
2-0 A. Grabus ('12)
2-1 M. Asperot ('22)
3-1 R. Kafaji Rosa ('23)
3-2 M. Asperot ('36)
Athugasemdir
banner
banner