Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þeir voru sáttir að spila 11 á móti tíu í seinni hálfleik"
Viktor Örn var tekinn af velli í hálfleik.
Viktor Örn var tekinn af velli í hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu, var ósáttur við það að Viktor Örn Margeirsson, varnarmaður Breiðabliks, hafi ekki fengið að líta rauða spjaldið í leik Gróttu og Blika í Pepsi Max-deildinni í gær.

Leikurinn endaði með 1-0 sigri Breiðabliks. Thomas Mikkelsen skoraði sigurmarkið af vítapunktinum fyrir Kópavogsliðið sem var einum manni fleiri frá 36. mínútu eftir að Kristófer Melsted, varnarmaður Gróttu, fékk að líta beint rautt spjald.

„Mér fannst línan ekkert sérstaklega góð hjá dómaranum," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu, eftir leikinn.

Ívar Orri Kristjánsson var með flautuna í leiknum.

„Við fáum rautt og tvö víti á okkur. Mögulega átti leikmaður Gróttu að fara út af í fyrri hálfleik eftir að hann tók góða tæklingu og fær gult spjald fyrir. Ég hefði haldið að það væri á grensinu með að vera rautt. Svo seinna í hálfleiknum stöðvar hann góða skyndisókn en þeir sleppa honum. Blikarnir gerðu vel, skiptu honum út af í hálfleik og voru sáttir með að vera 11 á móti tíu í seinni hálfleiknum," sagði Gústi jafnframt.

Textalýsinguna frá leiknum má sjá og viðtalið við Gústa má sjá hér að neðan. Þar ræðir Gústi einnig um rauða spjaldið sem Grótta fékk.
Gústi Gylfa: Strákarnir sýndu góðan varnarleik
Athugasemdir
banner
banner