Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   lau 22. ágúst 2020 16:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðar Örn vekur áhuga hjá stórum félögum á Norðurlöndum
Viðar Örn í landsleik.
Viðar Örn í landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson er án félags þessa stundina og miðað við fréttaflutning frá Norðurlöndum er mikill áhugi á honum á þeim slóðum.

Þessi 30 ára gamli framherji var lánaður frá Rostov til Yeni Malatyaspor í janúar en hann lék 15 leiki í tyrknesku úrvalsdeildinni og skoraði tvö mörk ásamt því að leggja upp eitt.

Yeni nýtti sér forkaupsréttinn á Viðari í sumar en félagið hefur verið að glíma við fjárhagsvandræði eftir að það féll niður í B-deildina og náði þvi Viðar samkomulagi við Yeni um að hann gæti farið fra liðinu.

Hann er því í leit að nýju félagi núna. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Hammarby í Svíþjóð og segir Fotbolldirekt.se í Svíþjóð að Malmö hafi einnig áhuga á honum. Hann raðaði inn mörkunum fyrir bæði þessi félög þegar hann var þar.

Einnig segir vefsíðan að félög frá Noregi og Danmörku hafi áhuga honum. Orri Rafn Sigurðarson, íþróttalýsandi á Viaplay, segir að Bröndby sé eitt af þeim félögum.


Athugasemdir
banner
banner