Julen Lopetegui, stjóri Sevilla, vann í gær sinn fyrsta titil sem þjálfari félagsliðs þegar hann stýrði Sevilla til sigurs í Evrópudeildinni.
Lopetegui grét eftir leikinn en hér að neðan má sjá myndband af viðbrögðum hans eftir að flautaði hafði verið til leiksloka í sigrinum á Inter í gær.
Leiðin hefur verið allt önnur en greið að fyrsta titlinum fyrir Lopetegui sem hefur kannski alltaf tekið skynsamlegustu ákvarðanirnar á sínum þjálfaraferli.
Eftir góðan árangur sem þjálfari yngri landsliða Spánar þjálfaði þessi fyrrum varamarkvörður Barcelona og Real Madrid, lið Porto. Hann tók svo við spænska landsliðinu en var rekinn úr því starfi nokkrum dögum fyrir fyrsta leik á HM 2018. Hann var rekinn þar sem hann tók við Real Madrid án þess að láta knattspyrnusambandið vita. Það gekk ekkert hjá Real Madrid og var hann rekinn eftir um fimm mánuði í starfi þar.
Hann fékk tækifæri hjá Sevilla í fyrra og hefur honum gengið mjög vel þar eftir erfitt ár þar á undan. Leiðin var ekki greið en hann gafst ekki upp og núna er hann Evrópudeildarmeistari.
Julen Loptegui's reaction after the final whistle last night was priceless. from r/soccer
What a two years it's been for Julen Lopetegui:
— Zach Lowy (@ZachLowy) August 21, 2020
-Sacked from the Spain job before the World Cup even began
-Sacked after two months with Real Madrid
-Rejected from the USMNT job
-Finished top four with Sevilla
-Beat United, Inter, Wolves, Roma etc to win the Europa League pic.twitter.com/t3A0XFv08A
Athugasemdir



