Það hefur gengið afar illa hjá Völsungi í sumar og er liðið á botni 2. deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir 11 leiki spilaða.
Það er ansi athyglisverð tölfræði að Völsungur hefur komist yfir í níu af 11 leikjum sínum, en samt aðeins unnið einn þeirra. Þá er verið að tala um 1-0 forystu. Rætt var um Völsung í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni í vikunni.
„Ég ætla ekki að vera leiðinlegur við Húsvíkinga en ég ætla að vera alveg hreinskilinn. Mér finnst þeir alveg svakalega lélegir," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.
„Við gerðum þá alveg brjálaða með Jaja Ding Dong og þeir fóru og unnu sigur eftir það, en taflan lýgur ekki. Ég er búinn að segja það alltaf að það býr mikið í þessu liði," sagði Óskar Smári Halldórsson sem hrósaði Jóhanni Kristni, þjálfari Völsungs, fyrir viðtal sem hann fór í á dögunum.
„Ég verð að gefa honum þvílíkt hrós. Hann sagði að þeir þyrftu ekki að leita að leikmönnum, að þeir væri búnir að koma sér í þennan skít sjálfir og ætluðu að koma sér úr honum sjálfir. Þetta er karakterslið..."
„Á móti okkar leit það ekki út fyrir það," sagði Sverrir þá, en hann er leikmaður Kára. „Það voru 2-3 menn með smávægilegu lífsmarki. Bjarki Baldvins og Sæþór."
„Ég sá aðeins úr leiknum gegn Haukum þar sem þeir komast yfir eftir 12 mínútur, en tapa 2-1. En þar fannst mér þeir mæta ofjörlum sínum. Mér fannst Haukaliðið töluvert betra fótboltalið."
„Mér fannst það svipað á móti Kára, þeir áttu aldrei séns í leiknum þó það hafi verið frekar lélegur leikur hjá Kára. Það var samt aldrei hætta á að við myndum tapa, það var svo lítið í gangi hjá Völsungi," sagði Sverrir.
„Núna er staðan orðin þannig að þeir eru með fjögur stig, Dalvík/Reynir með fimm stig, Víðir með níu stig og ÍR tíu. Það er kominn gluggi á milli. Það getur lagst á sálina að þú kemur þér ekki upp úr fallsæti með sigri. Ég vona svo innilega fyrir vini mína á Húsavík að þeir nái að rífa sig upp," sagði Óskar og bætti við: „Að sama skapi hafa þeir kannski náð að stilla upp sínu besta liði einu sinni í sumar, það hefur verið mikið af meiðslum og forföllum. Það telur að sjálfsögðu."
Umræðuna má hlusta á í heild sinni hér að neðan.
Athugasemdir



