Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 07:30
Victor Pálsson
Willian ætlar að vinna Meistaradeildina með Arsenal
Willian, nýr leikmaður Arsenal, er mættur til félagsins til að vinna Meistaradeildina að eigin sögn.

Willian gerði þriggja ára samning við Arsenal á dögunum en hann kom til félagsins á frjálsri sölu frá Chelsea.

Það er markmið Willian og Mikel Arteta, stjóra Arsenal, að vinna deild þeirra bestu á næstu þremur árum.

„Þegar ég ræddi við stjórann þá sagði hann mér af hverju hann þurfti á mér að halda í þrjú ár," sagði Willian.

„Fyrst vill hann komast í Meistaradeildina og svo vinna hana áður en ég yfirgef félagið. Það er það sem ég vildi heyra."

„Ég var hjá Chelsea í sjö ár og vann allt fyrir utan Meistaradeildina. Vonandi færa þessi félagaskipti mér bikarinn sem ég hef ekki unnið."

Athugasemdir
banner
banner