Marca: Real Madrid leiðir baráttuna um Bellingham
Spænska félagið Real Madrid er nú búið að taka bílstjórasætið af Liverpool í baráttunni um enska miðjumanninn Jude Bellingham, en MARCA
Bellingham er einn heitasti miðjumaður Evrópu um þessar mundir og eru allir stærstu klúbbarnir að berjast um að fá hann.
Verðmiðinn er hár eða um 150 milljónir evra en það fælir ekki félög á borð við Liverpool, Manchester City, Manchester United og Real Madrid í burtu.
Hingað til hefur Liverpool verið að leiða baráttuna um þennan 19 ára gamla leikmann Borussia Dortmund en MARCA segir í dag að Real Madrid sé komið í forystu.
Bellingham á eftir að ræða við stjórnarmenn Dortmund og taka ákvörðun um næstu skref en hann gæti samið við nýtt félag í janúarglugganum.

Athugasemdir