Elliot Anderson, leikmaður Nottingham Forest, hefur gengið í gegnum erfiða tíma að undanförnu.
Hann missti mömmu sína um daginn en hann sneri fljótt aftur í hópinn. Hann spilaði með liðinu í gær þegar Forest vann öruggan 5-0 sigur á Sunderland en Anderson skoraði fimmta mark liðsins.
Hann missti mömmu sína um daginn en hann sneri fljótt aftur í hópinn. Hann spilaði með liðinu í gær þegar Forest vann öruggan 5-0 sigur á Sunderland en Anderson skoraði fimmta mark liðsins.
„Við erum á góðu skriði í augnablikinu. Þetta hefur tekið smá tíma en við höfum fulla trú á okkur sjálfum. Stjórinn stendur við bakið á okkur og við njótum þess," sagði Anderson.
„Ég er mjög ánægður með markið og ánægður að hafa skorað hér. Ég veit að mamma hefði verið rosalega stolt af mér svo ég er ánægður."
Forest er sem stendur átta stigum frá fallsæti eftir sigurinn.



