PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arbeloa: Dómararnir skilja ekki fótbolta
Mynd: EPA
Það gengur hvorki né rekur hjá Real Madrid um þessar mundir en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum í öllum keppnum.

Liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Real Betis í spænsku deildinni í gær en Hector Bellerin jafnaði metin fyrir Betis í blálokin eftir að Vinicius Junior hafði komið Real yfir í fyrri hálfleik.

Alvaro Arbeloa, stjóri Real, var ósáttur með dómarann en hann taldið Antony hafi brotið á Ferland Mendy í aðdraganda jöfnunarmarksins.

„Þetta var augljóst fyrir mér. Það þarf ekki mikið til þegar menn eru að nota líkamann, ef þú ert ekki í fullkomnu jafnvægi þarf lítið til að þú fallir í jörðina. Maður þarf að skilja fótbolta aðeins, þar held ég að vandamálið liggi," sagði Arbeloa.

„Margir og sérstaklega þeir sem þurfa að taka þessar ákvarðanir vita ekki neitt eða skilja ekki. Það er ljóst að við urðum fyrir vonbrigðum í lokin eins og svo oft áður. Við áttum þessi úrslit ekki skilið því við fengum færi. Það var líka augljóst víti í fyrri hálfleik sem við hefðum getað nýtt til að klára leikinn."
Slapp
banner
banner
banner
banner