Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 22:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: De Bruyne frábær í sigri Napoli - McTominay á skotskónum
Mynd: EPA
Napoli 4 - 0 Cremonese
1-0 Scott McTominay ('3 )
2-0 Kevin De Bruyne ('45 )
3-0 Filippo Terracciano ('45 , sjálfsmark)
4-0 Alisson Santos ('52 )
4-0 Scott McTominay ('83 , Misnotað víti)

Napoli vann öruggan sigur á Cremonese í fyrsta leik 34. umferðar í ítölsku deildinni í kvöld.

Napoli náði forystunni snemma leiks þegar Scott McTominay skoraði með skoti fyrir utan teiginn eftir sendingu frá Kevin De Bruyne.

Napoli tvöfaldaði forystuna undir lok fyrri hálfleiks þegar skot Rasmus Höjlund fór af Filippo Terracciano og í netið. De Bruyne bætti þriðja markinu við í uppbótatíma fyrri hálfleiks.

Alisson Santos bætti fjórða markinu við snemma í seinni hálfleik. McTominay hefði getað skorað sitt annað mark undir lokin þegar Napoli fékk vítaspyrnu en Emil Audero, markvörður Cremonese, varði frá honum.

Napoli er í 2. sæti með 69 stig, níu stigum á eftir toppliði Inter og þremur stigum á undan Milan sem mætir Juventus á sunnudaginn. Cremonese getur dottið niður í fallsæti ef Lecce nær í úrslit gegn Verona á morgun, liðin eru með jafn mörg stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner
banner