PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir að Cherki hafi hafnað Chelsea - „Fannst þetta of auðvelt"
Mynd: EPA
Rayan Cherki gekk til liðs við Real Madrid frá Lyon síðasta sumar og hefur slegið í gegn.

Hann hefur komið að 23 mörkum í 45 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.

Cherki er 22 ára en hann sló í gegn á reynslu hjá Chelsea fyrir nokkrum árum síðan.

Miles Leaburn, þáverandi leikmaður Chelsea, segir frá því að Cherki hafi verið ótrúlega góður árið 2015 þegar hann var á reynslu hjá Chelsea aðeins 12 ára gamall.

„Hann hafnaði því líklega að spila fyrir Chelsea því honum fannst þetta of auðvelt. Hann var margfallt betri en allir aðrir. Það var eitt af því sem stóð upp úr hjá mér á þessu átta ára tímabili hjá Chelsea," sagði Leaburn.

Chelsea rifti samningi Leaburn árið 2019 þegar hann var 16 ára og hann gekk til liðs við Charlton þar sem hann hefur verið allar götur síðan.


Slapp
banner
banner