Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáum við „svindlkallinn" aftur á Íslandi í sumar?
Kvenaboltinn
Katie Cousins.
Katie Cousins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katie Cousins yfirgaf Þrótt eftir síðasta tímabil og hélt til Portúgals þar sem hún gekk í raðir Íslendingafélagsins Damaiense.

Katie kom fyrst hingað til lands árið 2021 og spilaði með Þrótti. Hún kom svo aftur 2023 og gekk þá aftur í raðir Þróttar, en hún lék með Val 2024. Hún fór svo aftur yfir í Laugardalinn fyrir tímabilið í fyrra.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, vildi ekki útiloka mögulega endurkomu Katie í Niðurtalningunni á dögunum. Það var svo rætt um það í Uppbótartímanum.

„Hún er eiginlega svindlkall í íslensku deildinni, er með brjálaðan leikskilning og ótrúlega flott inn á miðjunni," sagði Snæbjört Pálsdóttir í Uppbótartímanum

„Það væri geggjað fyrir þær ef þær fengu hana aftur, jafnvel þó hún sé að jafna sig af meiðslum."

Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan


Slapp
banner
banner
banner