Sunderland fékk skell gegn Nottingham Forest á heimavelli í úrvalsdeildinni í gær.
Leiknum lauk með 5-0 sigri Forest en staðan var 4-0 í hálfleik. Regis Le Bris, stjóri Sunderland, var eyðilagður í leikslok.
Leiknum lauk með 5-0 sigri Forest en staðan var 4-0 í hálfleik. Regis Le Bris, stjóri Sunderland, var eyðilagður í leikslok.
„Það er sárt að tapa svona stórt á heimavelli svona snemma í fyrri hálfleik því þessi leikur var búinn eftir 45 mínútur. 4-0 undir í fyrri hálfleik, það er erfitt að útskýra það. Þetta er góð áminning því þegar menn slaka aðeins á mun andstæðingurinn drepa þig, það var raunin í fyrri hálfleik," sagði Le Bris.
„Þeir pressuðu vel og við gátum ekki byggt upp sókn undir þessari pressu og skriðþunginn breyttist í þeirri stöðu. Þeir voru klínískir, skoruðu fjögur mörk í fyrri hálfleik. Þetta var eins og að vera kýldur í andlitið."



