Cesc Fabregas, fyrrum leikmaður Chelsea, hefur verið orðaður við stjórastarfið hjá félaginu eftir að Liam Rosenior var látinn taka pokann sinn á dögunum.
Fabregas er stjóri Como á Ítalíu en liðið er í 5. sæti í Serie A og er því í harðri Evrópubaráttu. Mirwan Suwarso, forseti Como, segir að Fabregas sé frjálst að fara til Chelsea.
Fabregas er stjóri Como á Ítalíu en liðið er í 5. sæti í Serie A og er því í harðri Evrópubaráttu. Mirwan Suwarso, forseti Como, segir að Fabregas sé frjálst að fara til Chelsea.
„Ef það veitir honum hamingju, maður vill halda starfsólkinu sínu eins lengi og hægt er en í lok dags eigum við hann ekki og hann má fara til Chelsea ef hann vill," sagði Suwarso.
„Það væri klikkað að hugsa um eitthvað annað en þessa fimm leiki sem eftir eru og koma liðinu mínu í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögunni," sagði Fabregas.
„Ég hef ekki séð eða heyrt um það sem forsetinn sagði annað en að hann meti mig mikils."




