Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. september 2018 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía í dag - Bologna fer á Allianz-leikvanginn
Juventus fær Bologna í heimsókn
Juventus fær Bologna í heimsókn
Mynd: Getty Images
Sjö leikir fara fram í 6. umferð Seríu A á Ítalíu en Cristiano Ronaldo og félagar mæta Bologna.

Udinese og Lazio eigast við í fyrsta leik dagsins sem hefst klukkan 17:00.

Emil Hallfreðsson og liðsfélagar hans í Frosinone fara á Ólympíleikvanginn í Róm og Atalanta mætir Torino. Þá eigast Cagliari og Sampdoria við.

Genoa mætir Chievo og þá ætlar Cristiano Ronaldo að skemmta áhorfendum á Allianz-arena er Bologna heimsækir Juventus. Nýliðarnir í Parma fara þá til Napoli á erfiðan útivöll.

Leikir dagsins:
17:00 Udinese - Lazio
19:00 Roma - Frosinone
19:00 Atalanta - Torino
19:00 Cagliari - Sampdoria
19:00 Genoa - Chievo
19:00 Juventus - Bologna
19:00 Napoli - Parma
Athugasemdir
banner