Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Framarar rúlluðu yfir Eyjamenn
Atli Þór Jónasson setti tvennu fyrir Fram
Atli Þór Jónasson setti tvennu fyrir Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV tapaði þriðja leik sínum í deildinni
ÍBV tapaði þriðja leik sínum í deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 5 - 1 ÍBV
1-0 Atli Þór Jónasson ('11 )
2-0 Atli Þór Jónasson ('32 )
3-0 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('49 )
3-1 Róbert Elís Hlynsson ('72 )
4-1 Kyle Douglas Mc Lagan ('76 )
5-1 Kristófer Konráðsson ('88 )
Lestu um leikinn

Framarar unnu annan leik sinn í Bestu deild karla þetta árið er liðið valtaði yfir ÍBV, 5-1, í 4. umferð deildarinnar á Lambhagavellinum í kvöld.

Eyjamenn hafa ekki riðið feitum hesti í byrjun leiktíðar og aðeins náð í eitt stig fyrir leikinn á meðan Framarar voru með fjögur stig úr þremur leikjum.

Atli Þór Jónasson kom Fram í tveggja marka forystu. Fyrra markið gerði hann á 11. mínútu eftir rosalega klaufalegan varnarleik hjá Eyjamönnum þar sem Mattias Edeland skallaði boltann aftur fyrir sig og hikaði Marcel Zapytowski, markvörður ÍBV í markinu. Hann hljóp fram, en bakkaði og var það allt of seint því Atli Þór náði að koma sér framhjá Marcel áður en hann setti boltann í netið.

Framherjinn bætti við öðru marki eftir gott samspil milli Fred og Vuk Oskars Dimitrijevic. Fred fékk boltann aftur, kom honum fyrir á Atla sem skoraði annað markið.

Sanngjörn 2-0 forysta í hálfleik og bættu heimamenn við marki snemma í síðari með marki frá Þorra Stefáni Þorbjörnssyni. Hann fékk boltann eftir hreinsun og þrumaði boltanum í netið.

Eyjamenn vöknuðu aðeins þegar leið á leikinn og náðu að minnka muninn á 72. mínútu er Róbert Elís Hlynsson þrumaði aukaspyrnu við D-bogann í vinstra hornið.

Framarar drápu leikinn algerlega fjórum mínútum síðar er Kyle McLagan stangaði aukaspyrnu Haraldar Einars Ásgrímssonar í netið og undir lokin gerði Kristófer Konráðsson fimmta og síðasta markið nokkrum mínútum eftir að hafa komið inn af bekknum með hörkuskoti af hægri vængnum, í stöng og inn.

Annar sigur Fram staðreynd sem er komið með sjö stig eftir fjórar umferðir en Eyjamenn áfram með eitt stig og enn í leita að fyrsta sigrinum.

Lítur illa út hjá Eyjamönnum sem hafa fengið á sig ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 3 3 0 0 14 - 6 +8 9
2.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
3.    Víkingur R. 3 2 1 0 6 - 3 +3 7
4.    Valur 3 2 0 1 6 - 3 +3 6
5.    Stjarnan 3 2 0 1 8 - 7 +1 6
6.    Þór 3 2 0 1 5 - 6 -1 6
7.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 3 0 1 2 3 - 7 -4 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner