Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 18:46
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Draumur Atalanta nánast úti eftir tap gegn fallbaráttuliði
Paul Mendy setti tvö fyrir Cagliari
Paul Mendy setti tvö fyrir Cagliari
Mynd: EPA
Cagliari 3 - 2 Atalanta
1-0 Paul Mendy ('1 )
2-0 Paul Mendy ('8 )
2-1 Gianluca Scamacca ('40 )
2-2 Gianluca Scamacca ('45 )
3-2 Gennaro Borrelli ('47 )

Möguleikar Atalanta á að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð eru nánast orðnir að engu eftir óvænt 3-2 tap gegn fallbaráttuliði Cagliari í kvöld.

Atalanta fékk martraðarbyrjun í leiknum, en Paul Mendy setti tvö mörk á fyrstu átta mínútunum. Hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri vængnum og seinna markið með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu.

Gestirnir komu til baka undir lok fyrri hálfleiks með tveimur mörkum frá Gianluca Scamacca.

En það var Cagliari sem átti lokaorðið með marki snemma í síðari hálfleiknum frá Gennaro Borrelli sem hirti frákast í teignum eftir frábæran undirbúning Michael Folorunsho, sem lék á mann og annan, áður en markvörðurinn varði skot hans til Borrelli sem setti boltann í markið.

Atalanta er í 7. sæti með 54 stig, tíu stigum á eftir Juventus sem er í síðasta Meistaradeildarsætinu, en Cagliari í 16. sætinu með 36 stig, átta stigum fyrir ofan fallsæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 25 4 5 80 31 +49 79
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 34 19 10 5 48 27 +21 67
4 Juventus 34 18 10 6 57 29 +28 64
5 Como 34 17 10 7 59 28 +31 61
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 34 14 12 8 47 32 +15 54
8 Bologna 34 14 6 14 42 41 +1 48
9 Lazio 34 12 11 11 34 31 +3 47
10 Sassuolo 34 13 7 14 41 44 -3 46
11 Udinese 34 13 7 14 39 43 -4 46
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 34 11 8 15 39 56 -17 41
14 Genoa 34 10 9 15 40 48 -8 39
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 34 9 9 16 36 49 -13 36
17 Lecce 34 7 8 19 22 46 -24 29
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 34 2 12 20 24 61 -37 18
Slapp
banner
banner