,,Við komum hingað til þess að taka þrjú stig, en engu að síður þá buðu bæði liðin upp á frábæra skemmtun og mér fannst þetta vera skemmtilegur leikur á að horfa," sagði Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Breiðabliks eftir 2-2 jafntefli við ÍBV í fjörugum lokaleik þessara liða á þessu tímabili.
,,Við ætluðum okkur að gera góða atlögu að fyrsta sætinu en við vorum eiginlega alltaf skrefinu á eftir Stjörnunni en það var samt ekki mikið sem skildi á milli þessara tveggja liða," sagði Hlynur aðspurður um lokastöðu liðsins í deildinni en Breiðablik endaði í 2. sæti.
,,Við erum með fullt af mörkum í okkar liði og það var bara tímaspursmál hvenær við myndum skora en bæði lið fengu auðvitað sína sénsa,"
,,Ég er þó fyrst og fremst virkilega ánægður með stelpurnar, hvernig við klárum tímabilið og ég er mjög stoltur af þeim," sagði Hlynur að lokum.























