Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 28. febrúar 2026 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spilaði á stærsta sviðinu en er nú í fjórðu efstu deild
Douglas Costa.
Douglas Costa.
Mynd: EPA
Douglas Costa spilaði á stærstu leikvöngum í heimi og í Meistaradeild Evrópu, en núna spilar hann á túni í ítölsku fjórðu deildinni.

Hinn 35 ára gamli Costa kom fyrst fram á sjónarsviðið með Gremio í Brasilíu en hann skipti þaðan yfir til Shakhtar Donetsk í Úkraínu árið 2010.

Hann vann svo tvo Þýskalandsmeistaratitla með Bayern München og þrjá Ítalíutitla með Juventus.

Á síðustu árum hefur hann kom víða við og spilaði í Ástralíu, Bandaríkjunum og Brasilíu. Í janúar sneri hann aftur til Ítalíu er hann skrifaði undir samning við Chievo sem spilar í fjórðu efstu deild á Ítalíu.

Myndbönd hafa birst hafa honum þar sem hann er að spila á grastúni á Ítalíu en hægt er að sjá eitt slíkt hér fyrir neðan.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner