Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 16:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
FH-ingar slógu á létta strengi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og vel hefur verið fjallað um þá mættu FH-ingar ekki út í seinni hálfleikinn gegn Fylki í Lengjubikarnum í gærkvöldi.

Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, sagði við 433.is að forráðamenn FH hafi talið heilsu leikmanna vera ógnað í leik liðanna og þess vegna hafi liðið neitað að spila seinni hálfleikinn í Árbæ.

FH óskaði eftir því að leikurinn yrði flautaður af vegna aðstæðna á vellinum en Helgi Mikael Jónasson dómari neitaði að verða við því. Það snjóaði nokkuð í fyrri hálfleiknum en völlurinn var mokaður í hálfleik og aðstæður fóru batnandi.

FH-ingar slógu á létta strengi í dag yfir enska boltanum. Liverpool var 3-0 yfir gegn West Ham í hálfleik.

„Við hvetjum West Ham að sleppa því að koma út í seinni hálfleikinn," skrifuðu FH-ingar einfaldlega en West Ham mættu út í seinni hálfleikinn og eru búnir að minnka muninn.


Athugasemdir
banner
banner