Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 18:03
Brynjar Ingi Erluson
PSG fær meiri hvíld en Chelsea
Mynd: EPA
Franska deildin hefur samþykkt að fresta leik Paris Saint-Germain og Nantes, sem átti að fara fram 14. mars, svo PSG geti fengið meiri hvíld fyrir leikina gegn Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

PSG mætir Chelsea í fyrri leiknum þann 11. mars en liðið átti að spila þremur dögum síðar gegn Nantes í deildinni og mæta síðan Chelsea aftur 17. mars.

Evrópumeistararnir óskuðu eftir því að leiknum gegn Nantes yrði frestað og samþykkt deildin það.

Nantes-leikurinn hefur verið færður til 20. apríl og verða því leikmenn úthvíldir þegar þeir mæta í síðari leikinn gegn Chelsea sem spilaður er á Stamford Bridge.

Chelsea mun hins vegar ekki fá neitt frí. Liðið spilar við Newcastle United þann 14. mars og verða þeir því með aðeins þreyttari lappir en frönsku kollegar þeirra.

Þetta er í annað sinn sem PSG fær það í gegn að fresta leik vegna Meistaradeildarinnar en á síðasta ári frestaði deildin einnig leik liðsins við Nantes. Sá leikur var á milli leikja PSG við Aston Villa í 8-liða úrslitum keppninnar.
Athugasemdir
banner
banner