Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 28. febrúar 2026 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sagan verði fyrirmynd fyrir unga leikmenn
Ívar Örn gekk í raðir Breiðabliks á dögunum.
Ívar Örn gekk í raðir Breiðabliks á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar í leik með Breiðabliki.
Ívar í leik með Breiðabliki.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Breiðablik keypti á dögunum miðvörðinn Ívar Örn Árnason frá KA. Ívar verður þrítugur seinna á árinu en það eru ekki mörg ár síðan hann varð byrjunarliðsmaður hjá KA. Hann tók stór skref á síðustu árum og varð lykilmaður.

Núna er hann kominn í Breiðablik þar sem hann ætlar að taka næstu skref á ferlinum.

Ívar var í mjög áhugaverðu viðtali hér á Fótbolta.net þar sem hann talaði um sína sögu í fótboltanum. Hann vonast til þess að yngri leikmenn muni horfa á hana.

„Ég er ógeðslega stoltur, líka að sagan mín sé bara besta fyrirmynd fyrir ungan leikmann sem er að koma upp, sama hjá hvaða liði það er. Fótbolti er ekki þannig að það eru alltaf allar dyr opnar, það er ekki þannig að það er bara einhver flugbraut fyrir framan þig og þú þarft bara að spila vel hér til að komast áfram. Þetta er alltaf ströggl, þú mætir mörgum lokuðum dyrum," sagði Ívar.

„Ég veit ekki hversu oft það var keyptur vinstri bakvörður þegar ég var að komast upp í meistaraflokk. Ég tók einu sinni pirringskast af því ég fór út í U21 landsleik en þá er maðurinn sem var að spila í minni stöðu mættur aftur eftir meiðsli og ég sé ekki völlinn eftir það. Ég er búinn að þurfa að ströggla svakalega mikið hjá KA og búinn að þurfa berjast fyrir hverri einustu mínútu sem ég hef fengið að spila. Það er ekki nema kannski 3-4 ár aftur í tímann frá því að ég varð alvöru byrjunarliðsmaður. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að ég blómstraði seint í fótboltanum og Hallgrímur Mar er líka dæmi um svoleiðis. Þetta er að mörgu leyti þroskatengt, maður var bara ekki nógu þroskaður áður fyrr. Ég er með svakalega mikla þrautseigju og ég er þrjóskari en andskotinn. Það kom mér yfir línuna að lokum, ég setti hausinn niður, vann vinnuna og mætti á æfingarnar. Ég hef aldrei verið meiddur, alltaf verið til taks þegar byrjunarliðið er lesið upp sem er frábær kostur."

„Ég myndi segja að ég sé ofboðslega stoltur af mínum tíma og ég vona innilega að leikmenn sem eru kannski ekki í byrjunarliðinu í 2. eða 3. flokki eða eru að taka skrefið upp í meistaraflokkinn og eru að lenda svolítið á veggjum átti sig á því að að er enginn heimsendir. Það þarf ekki alltaf að fara á láni eða fara í nýtt lið. Þú þarft líka stundum að taka því og læra af næsta manni. Svo þarf að vera þolinmóður, þetta er þolinmæðisvinna," bætti hann svo við.
Athugasemdir
banner
banner