Benoný Breki Andrésson er meiddur á ökkla og hefur misst af síðustu leikjum Stockport sem er í ensku C-deildinni.
Benoný mun í fyrsta lagi spila aftur eftir rúma tvo mánuði en hann vonast til að geta verið með aftur áður en tímabilið klárast.
Benoný mun í fyrsta lagi spila aftur eftir rúma tvo mánuði en hann vonast til að geta verið með aftur áður en tímabilið klárast.
Benoný var í löngu viðtali við Fótbolta.net á dögunum þar sem hann fór um víðan völl. Hann ræddi meðal annars um meiðslin sem hann er núna að glíma við.
„Staðan er fín, ég var í gifsi í tvær vikur og fór úr því í gær. Ég er hægt og rólega byrjaður að labba aftur, strax betri í dag en ég var í gær. Það styttist í að ég losni við hækjurnar. Ég verð í hlífðarskónum í um fjórar vikur. Ég má svitna, gera ökklaæfingar, þarf bara að vera í skónum þegar ég er ekki í því," sagði Benoný.
„Ég er bjartsýnn á að geta eitthvað spilað í lok tímabils. Eins og staðan er núna erum við ekki að fara beint upp. Ef við náum að fara í umspilið þá ætti ég að vera klár fyrir það, það verður í byrjun maí. Við miðum á það, það er planið. Aðgerðin gekk mjög vel, allir skurðir líta vel út. Þetta var sami ökkli og ég hef verið með í veseni með, meiðst 3-4 á honum. Þegar ég lenti í þessum meiðslum þurfti ég að fara í aðgerð, það var sett gerviliðband og einhverjar skrúfur. Ég er mjög sterkur núna í ökklanum."
„Æfingarnar sem ég er að gera eru mikið upp og niður með ökklann, jafnvægisæfingar, til að byrja með má ég ekki hreyfa hann til hliðar. Þegar líður á ferlið þá fer ég í að hoppa og svo út á gras. Þeir sem eru meiddir fara mikið á þrekhjólið og skíðavélina til að halda sér í góðu formi," bætti hann við.
Athugasemdir


