Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 15:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir vildi halda leik áfram - „Bara smá snjókoma"
Heimir Guðjónsson.
Heimir Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH dró lið sitt af velli í gær.
FH dró lið sitt af velli í gær.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Frá Fylkisvelli. Það var ekki alveg svona veður í gær.
Frá Fylkisvelli. Það var ekki alveg svona veður í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti mikla athygli í gær að FH ákvað að gefa leik sinn gegn Fylki í Lengjubikar karla. FH mætti ekki út í seinni hálfleikinn og fékk Fylkir því dæmdan 3-0 sigur.

Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, sagði við 433.is að forráðamenn FH hafi talið heilsu leikmanna vera ógnað í leik liðanna og þess vegna hafi liðið neitað að spila seinni hálfleikinn í Árbæ.

FH óskaði eftir því að leikurinn yrði flautaður af vegna aðstæðna á vellinum en Helgi Mikael Jónasson dómari neitaði að verða við því. Það snjóaði nokkuð í fyrri hálfleiknum en völlurinn var mokaður í hálfleik og aðstæður fóru batnandi.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis og fyrrum þjálfari FH, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag og var spurður út í gærkvöldið.

„Ég var með æfingu í morgun, svo þegar ég var að keyra úr Árbænum hingað niður á Suðurlandsbraut þá hugsaði ég með mér að þetta yrði pottþétt fyrsta spurningin sem ég fæ í þættinum," sagði Heimir og hló.

„Ég ætla fyrst að hrósa Fylkismönnum og þeim sem stjórna þar. Þeir mokuðu völlinn þrisvar eða fjórum sinnum svo leikurinn gæti farið fram. Fyrsti hálftíminn var allt í lagi. Svo byrjaði að snjóa helvíti hressilega og Helgi Mikael (dómari leiksins) tók ákvörðun um að klára fyrri hálfleikinn. Ég var sammála því en FH-ingarnir ekki."

„Svo var völlurinn skafinn í hálfleik og Helgi Mikael sagði okkur að hálfleikurinn yrði 25 mínútur. Það var fínt veður en hann tók það fram að ef það kæmi aftur snjókoma þá myndi hann blása leikinn af. FH-ingarnir mættu ekki í seinni hálfleikinn og ástæðan... Davíð (Þór Viðarsson) sagði að aðstæður hefðu verið hættulegar en mér fannst það ekki. Við sjáum í vikunni að Víkingur - Þróttur og Breiðablik - Leiknir eru spilaðir við erfiðar aðstæður. Við erum á Íslandi og það er febrúar, þá má búast við að veðrið sé ekki alltaf frábært. Það var leikur um daginn í Skessunni, FH - ÍBV, ef að það voru ekki stórhættulegar aðstæður þá veit ég ekki hvað. Þetta var bara smá snjókoma. Þú ert með Skessuna sem er alltaf frosin og það er hægt að spila þar, en svo kemur smá snjókoma og þá er ekki hægt að spila."

Að mati Heimis var það rétt ákvörðun að halda leik áfram.

„Völlurinn var bara blautur og góður. Auðvitað skil ég að það var erfitt að sjá línurnar en það er ástæða fyrir því að við erum með dómara. Hann mat það þannig að það væri hægt að spila fram í hálfleik og taka svo stöðuna þá. Mér fannst það rétt ákvörðun að halda svo áfram með seinni hálfleikinn því það var komið fínt veður þá."

„Helgi Mikael tók mig á fund og sagði við mig að FH-ingarnir myndu ekki mæta. Við þurftum að fara út og það þurfti að blása leikinn á og svo af. Við gerðum það bara. Þá var þessu lokið. Fylkisliðið spilaði vel þennan eina hálfleik sem var spilaður í þessum leik."

Heimir bætti því við að hann hefði ekki dregið lið sitt af velli við svona aðstæður en hægt er að hlusta á útvarpsþáttinn og viðtalið við Heimi í heild sinni hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Athugasemdir
banner
banner