Skagamenn unnu góðan sigur á FH í kvöld þegar 9. umferð Bestu deild karla hóf göngu sína.
Lestu um leikinn: FH 0 - 1 ÍA
„Mér fannst FH-ingarnir betri í fyrri hálfleik þó að við höfum fengið ágætis færi" sagði Böðvar Böðvarsson fyrirliði ÍA eftir sigurinn í kvöld.
„Þeir voru að leysa vel að komast á bakvið miðjuna okkar í millisvæðin og breika á okkur. Flóki og Úlfur voru gríðarlega mikilvægir í þeim part leiksins"
„Mér fannst þeir betri í fyrri hálfleik en svo fannst mér seinni hálfleikurinn miklu betri hjá okkur þegar ég hugsa til baka núna og mér fannst við meira að segja geta unnið stærra miðað við færin sem að við fengum en góð frammistaða frá báðum liðum í dag"
Böðvar Böðvarsson var að mæta uppeldisfélaginu sínu FH í fyrsta skipti í kvöld.
„Það var skrítið að hita upp hinumegin. Það var skrítið að sjá mömmu og pabba stúkunni ÍA megin eða aðkomu liðs megin. Ég hef aldrei séð þau þar áður og það var steikt"
„Að vera á vellinum og eitthvað, maður hefur spilað hérna margoft og það hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning þannig þetta truflaði mig ekki of mikið" sagði Böðvar Böðvarsson.
Nánar er rætt við Böðvar Böðvarsson í spilaranum hér fyrir ofan.
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 9 | 8 | 1 | 0 | 29 - 5 | +24 | 25 |
| 2. KR | 9 | 7 | 1 | 1 | 33 - 20 | +13 | 22 |
| 3. Fram | 8 | 5 | 2 | 1 | 21 - 13 | +8 | 17 |
| 4. Breiðablik | 8 | 4 | 3 | 1 | 19 - 11 | +8 | 15 |
| 5. Valur | 9 | 5 | 0 | 4 | 18 - 17 | +1 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 8. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 9. Stjarnan | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 21 | -6 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |























