Einungis eitt lið í Pepsi-deild karla verður með nýjan þjálfara næsta sumar en litlar breytingar urðu þar í haust.
Helmingur af liðunum í 1. deild hefur skipt um þjálfara og fjögur lið í 2. deild eins og sjá má á listanum hér að neðan.
Helmingur af liðunum í 1. deild hefur skipt um þjálfara og fjögur lið í 2. deild eins og sjá má á listanum hér að neðan.
Pepsi-deild karla:
FH - Heimir Guðjónsson
Heimir hefur stýrt FH síðan 2008 og hann heldur áfram með Íslandsmeistarana.
Breiðablik - Arnar Grétarsson
Arnar mun taka sitt annað tímabil með Breiðabliki og fara með liðið í Evrópukeppni næsta sumar.
KR - Bjarni Guðjónsson
Bjarni tók við KR-ingum fyrir rúmu ári síðan og hann heldur áfram í Vesturbænum.
Stjarnan - Rúnar Páll Sigmundsson
Rúnar Páll gerði Stjörnuna að Íslandsmeisturum á fyrsta ári en náði ekki að fylgja því eftir í sumar. Hann er á leið á sitt þriðja ár með Stjörnuna.
Valur - Ólafur Jóhannesson
Óli Jó gerði Val að bikarmeisturum á fyrsta tímabili og hann heldur áfram á Hlíðarenda.
Fjölnir - Ágúst Gylfason
Gústi Púst hefur stýrt Fjölni undanfarin fjögur ár og hann heldur áfram í Grafarvogi.
ÍA - Gunnlaugur Jónsson
Gulli Jóns kom ÍA upp í 1. deild í fyrra og endaði í 7. sæti með liðið í Pepsi-deildinni í ár.
Fylkir - Hermann Hreiðarsson
Hemmi tók við af Ásmundi Arnarssyni um mitt sumar og hann tekur áfram slaginn í Árbænum.
Víkingur R. - Milos Milojevic
Milos var gerður að aðalþjálfara með Ólafi Þórðarsyni undir lok móts árið 2014. Hann tók síðan einn við keflinu í sumar þegar Ólafur var leystur frá störfum.
ÍBV - Bjarni Jóhannsson*
Bjarni Jó er mættur aftur í Pepsi-deildina eftir þrjú ár hjá KA á Akureyri.
Víkingur Ó - Ejub Purisevic
Ejub er búinn að koma Ólsurum upp í Pepsi-deildina í annað skipti.
Þróttur - Gregg Ryder
Gregg kom Þrótti upp á sínu öðru ári með liðið. 27 ára og verður einn yngsti þjálfarinn í sögu efstu deildar næsta sumar.
1. deild karla:
Leiknir R. - Kristján Guðmundsson*
Kristján hefur tekið við stýrinu í Efra Breiðholti eftir að Davíð Snorri Jónasson og Freyr Alexandersson hættu.
Keflavík - Þorvaldur Örlygsson*
Þorvaldur hætti með HK og tók við Keflavík af Jóhanni Birni Guðmundssyni og Hauki Inga Guðnasyni.
KA - Srdjan Tufegdzic
Túfa tók við KA af Bjarna Jóhannssyni undir lok móts og náði fínum úrslitum. Skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í kjölfarið.
Þór - Halldór Jón Sigurðsson
Donni er að hefja sitt annað ár í þorpinu.
Grindavík - Óli Stefán Flóventsson*
Óli Stefán er orðinn aðalþjálfari eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari hjá Tommy Nielsen í sumar.
Haukar - Luka Kostic
Luka gerði vel með ungt lið Hauka og hann heldur áfram á Ásvöllum.
Fjarðabyggð - Víglundur Páll Eiríksson*
Brynjar Þór Gestsson er hættur eftir þriggja ára starf fyrir austan. Víglundur Páll Eiríksson hefur tekið við skútunni en hann hefur stýrt Einherja undanfarin ár.
HK - Reynir Leósson*
Reynir var aðstoðarþjálfari hjá Fylki í sumar en hann hefur nú tekið við HK af Þorvaldi Örlygssyni.
Fram - Ásmundur Arnarsson*
Ási Arnars tók við af Pétri Péturssyni í haust. Þekkir til hjá Fram eftir að hafa leikið með liðinu á sínum tíma.
Selfoss - Gunnar Rafn Borgþórsson
Gunnar tók við Selfyssingum af Zoran Miljkovic í sumar og stýrði þá bæði meistaraflokki karla og kvenna. Hann hefur nú sagt skilið við kvennaliðið en heldur áfram með karlana.
Huginn - Brynjar Skúlason
Brynjar hefur þjálfað Huginn í mörg ár og heldur að sjálfsögðu áfram eftir að liðið komst upp í 1. deild.
Leiknir F. - Viðar Jónsson
Viðar kom Fáskrúðsfirðingum upp í sumar og mun stýra liðinu í 1. deildinni á næsta ári.
2. deild:
Grótta - Úlfur Blandon*
Úlfur þjálfaði 2. flokk Víkings R. í sumar en hann tók við Gróttu af Gunnari Guðmundssyni.
BÍ/Bolungarvík - Ásgeir Guðmundsson*
Ásgeir var ráðinn þjálfari BÍ/Bolungarvíkur á dögunum en líklegt er að félagið semji einnig við erlendan þjálfara um að starfa við hans hlið.
ÍR - Arnar Þór Valsson
Addó er að fara inn í fjórða tímabil sitt með ÍR.
KV - Hjörvar Ólafsson
Hjörvar verður annað árið í röð við stjórnvölinn í Vesturbænum.
Höttur - Gunnlaugur Guðjónsson
Stýrði Hetti í 5. sæti í sumar eftir að hafa komið liðinu upp úr 3. deild í fyrra.
Afturelding - Úlfur Arnar Jökulsson
Úlfur tók við Aftureldingu undir lok tímabils í fyrra og hann verður áfram við stjórnvölinn í Mosfellsbæ.
KF - Jón Stefán Jónsson*
Jón Stefán stýrði Dalvík/Reyni síðari hluta sumars. Hann tekur við KF af nafna sínum Kristjánssyni sem hætti í haust.
Sindri
Varnarjaxlinn Auðun Helgason tekur annað tímabilið í röð með Sindra.
Ægir - Einar Ottó Antonsson*
Alfreð Elías Jóhannsson er hættur eftir fimm ára starf og Einar Ottó hefur tekið við.
Njarðvík - Guðmundur Steinarsson
Gummi Steinars heldur áfram með Njarðvíkinga. Er að sigla inn í þriðja tímabil sitt.
Magni Grenivík - Atli Már Rúnarsson
Atli Már sigraði 3. deildina með yfirburðum með Magna.
Völsungur - Páll Viðar Gíslason
Palli tók við Völsungi þegar hann hætti með Þór. Hann kom Húsvíkingum beint aftur upp í 2. deildina.
*Nýteknir við



