Fyrrum franski fótboltamaðurinn Claude Makélélé verður einn af dómurunum í Ungfrú heimur fegurðarsamkeppninni sem fer fram 21. nóvember í Taílandi.
Makélélé er einn af fimm dómurum sem hafa verið kynntir en hann hefur engan bakgrunn í fyrirsætuheiminum, að undanskildri þeirri staðreynd að hann var áður fyrr í sambandi með frönsku fyrirsætunni Noémie Lenoir og eiga þau son saman.
Hann er goðsögn í fótboltaheiminum eftir að hafa leikið fyrir Real Madrid, Chelsea og PSG á mögnuðum ferli auk þess að hafa verið partur af franska landsliðinu.
Skipuleggjendur fegurðarsamkeppninnar segjast hafa valið Makélélé útaf áhrifum hans sem alþjóðleg fyrirmynd og vegna ferils hans sem einkennist af framúrskarandi árangri og góðu siðferði.
Athugasemdir



