Man City, Man Utd og Arsenal á eftir Etta Eyong - Milan hefur áhuga á Zirkzee - Bayern í viðræðum um bakvörð
   fös 31. október 2025 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Guirassy tryggði þrjú stig fyrir Dortmund
Mynd: Dortmund
Augsburg 0 - 1 Dortmund
0-1 Serhou Guirassy ('37 )

Serhou Guirassy skoraði eina mark leiksins er Borussia Dortmund heimsótti Augsburg í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild þýska boltans.

Guirassy skoraði á 37. mínútu í afar bragðdaufri viðureign þar sem var afar lítið um færi. Hann skoraði með einu marktilraun Dortmund sem hæfði rammann.

Augsburg var sterkara liðið í síðari hálfleik en skapaði sér lítið af færum og tókst ekki að jafna, svo lokatölur urðu 0-1.

Dortmund er í öðru sæti eftir sigurinn, með 20 stig eftir 9 umferðir - fjórum stigum á eftir FC Bayern sem á leik til góða.

Augsburg er rétt fyrir ofan fallsvæðið með 7 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 8 8 0 0 30 4 +26 24
2 Dortmund 9 6 2 1 15 6 +9 20
3 RB Leipzig 8 6 1 1 16 9 +7 19
4 Stuttgart 8 6 0 2 13 7 +6 18
5 Leverkusen 8 5 2 1 18 11 +7 17
6 Eintracht Frankfurt 8 4 1 3 21 18 +3 13
7 Hoffenheim 8 4 1 3 15 13 +2 13
8 Köln 8 3 2 3 12 11 +1 11
9 Werder 8 3 2 3 12 16 -4 11
10 Union Berlin 8 3 1 4 11 15 -4 10
11 Freiburg 8 2 3 3 11 13 -2 9
12 Wolfsburg 8 2 2 4 9 13 -4 8
13 Hamburger 8 2 2 4 7 11 -4 8
14 St. Pauli 8 2 1 5 8 14 -6 7
15 Augsburg 9 2 1 6 12 21 -9 7
16 Mainz 8 1 1 6 9 16 -7 4
17 Heidenheim 8 1 1 6 7 16 -9 4
18 Gladbach 8 0 3 5 6 18 -12 3
Athugasemdir
banner
banner