,,Takmarkið er það sama og ég sagði eftir að við sigruðum Þrótt í úrslitaleiknum í Þorlákshöfn. Við tökum einn leik í einu og reynum að vinna hann. Önnur markmið verða ekki sett upp í sumar," sagði Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV sem tilkynnti í dag komu fjögurra sterkra leikmanna til félagsins.
Þetta eru landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir, markvörðurinn Birna Berg Haraldsdóttir og Serbarnir Danka Podovac og Vesna Smiljcovic.
,,Eins og við segjum hjá ÍBV eru tveir leikmenn að koma heim. Berglind Björg og Birna Berg eru báðar Vestmannaeyingar. Svo er það orðið opinbert að Danka Podovac og Vesna Smiljcovic munu spila með ÍBV næsta sumar," sagði hann en skiptir máli að styrkja liðið með leikmönnum sem hafa rætur í eyjum?
,,Já, mér finnst alltaf gott að fá Vestmannaeyinga til Vestmannaeyja. Maður getur alltaf náð nokkrum prósentum út úr svona eyjafólki, oft á tíðum. Við höfum verið mjög heppin með þá leikmenn sem hafa komið til Vestmannaeyja en ef þær eiga ættir sínar að rekja til eyja þá vil ég fá þær heim."
Í kvennafótbolta skipta sterkustu leikmennirnir yfirleitt í sterkustu liðin en nú gerist það að lið ÍBV sem eru nýliðar krækja í sterka leikmenn sem önnur lið höfðu áhuga á. Hvernig tókst Jóni Óla það?
,,Við höfum greinilega margt fram að færa og eftir að ég þjálfaði Grindavík hafa þær stelpur gefið mér góða dóma, ég tók líka við U17 ára liðinu tímabundið og ég veit að leikmennirnir þar voru mjög ánægðir með mín störf. Ég set upp mínar hugmyndir og ræði mína þjálfunarhætti vð leikmennina. Þær virðast heillast af þessu og greinilegt að við höfum eitthvað fram að færa."






















