,,Við vorum mjög einbeitt og undirbjuggum leikinn betur en aðra Reykjavíkurmótsleiki," sagði Gunnar Borþórsson þjálfari kvennaliðs Vals eftir 0-4 sigur liðsins á Fylki í Reykjavíkurmótinu í kvöld en þar með er Valur komið með aðra höndina á sigur í mótinu.
,,Við ætluðum bara að sýna að þetta væri ekkert djók og það myndi engu máli skipta þó við værum að missa leikmenn út. Liðið er mjög sterkt og vinnur vel. Fyrri hálfleikur var mjög góður á alla kanta. Liðið var að vinna vel saman, góður talandi og jákvæðar stelpurnar og hreyfðu sig vel. Þær sýndu það vel í fyrri hálfleik að við vorum mun betri."
Valur hefur misst Maríu B. Ágústsdóttur markvörð, Katrínu Jónsdóttur fyrirliða og Dóru Maríu Lárusdóttur í atvinnumennsku en þrátt fyrir það var liðið gríðarlega sterkt í kvöld.
,,Valur er með sterkt lið og verður með sterkt lið. Og það er ekki bara 11 manna lið, það er 20 manna hópur og þjálfarateymi og þetta verður unnið faglega og mjög vel alveg fram í fingurgóma."
Nánar er rætt við Gunnar í sjónvarpinu hér að ofan þar sem hann ræðir um nýjan markvörð liðsins sem kemur frá Bandaríkjunum, og væntanlegan leik gegn sænska liðinu Kristianstad í Egilshöll.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























