Rúnar Kristinsson þjálfari KR var ánægður með 3-2 sigur sinna manna gegn Keflavík í 8-liða úrslitum Valitor bikarsins í Vesturbænum í kvöld.
„Ég er rosalega ánægður. Þetta var vel spilaður leikur af okkar hálfu og við héldum uppi háu tempói. Ég er virkilega ánægður með framlag leikmannanna. Það var bara einn mínus, við gáfum þeim annað markið og komum þeim inn í leikinn eftir slakan varnarleik þar sem við ætluðum að spila okkur út úr vítateignum,“ sagði Rúnar við Fótbolta.net.
„Við vorum fljótir að jafna og það er mjög mikilvægt, en við erum bara sókndjarfir og viljum fara fram með liðið okkar og fá marga menn inn í teiginn. Það skilaði sér strax í kjölfarið á markinu þeirra og það var vel að því marki staðið.“
Rúnar viðurkennir að hafa ekki verið alveg í rónni þegar Keflvíkingar minnkuðu muninn í 3-2 í síðari hálfleiknum, en þá þyngdist sókn þeirra.
„Ég var mjög smeykur, því að um leið og við fáum á okkur annað markið ógna þeir okkur mun meira. Þeir fara með fleiri menn fram og breyta aðeins sínum leik. Við vorum náttúrulega farnir að verja okkar hlut og það er aldrei gott, við viljum sækja og við erum betri þegar við sækjum.“
Viðtalið við Rúnar má sjá í heild sinni hér að ofan.
























