„Við vorum frábærir í fyrri hálfleik, pressuðum þá um allan völl og unnum boltann á góðum stöðum. Við spiluðum heilt yfir góðan leik,“ segir Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir að hans menn rúlluðu yfir Grindavík 7-2.
FH fann taktinn heldur betur og lék á alls oddi nær allan leikinn.
„Það voru margir að stíga upp og spila virkilega vel. Það er alltaf þannig þegar lið vinna að liðsheildin skiptir máli og hún var til staðar."
Viðtalið við Heimi má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
























