,,Hann var lélegur af okkar hálfu, við vorum bara slakur," sagði Hallur Kristján Ásgeirsson leikmaður ÍH í samtali við Fótbolta.net eftir 1-3 tap gegn Hamar í dag í 2. deild karla.
Hallur skoraði mark Hamar í leiknum og fagnaði með að rífa sig úr af ofan og sýna á sér vömbina.
,,Það gefur ekki neitt, ef það hefði gefið stig í dag hefði það verið gaman."
,,Ég er náttúrulega allttof þungur en ef maður kann að staðsetja sig þá getur maður skorað. Þegar það er kallað þá verður maður að hafa gaman af því og sýna vömbina."
Nánar er rætt við Hall í sjónvarpinu hér að ofan.
























