Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   lau 20. ágúst 2011 16:58
Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Þórðarson: Við vorum bara daprir
Guðjón á hliðarlínunni í kvöld.
Guðjón á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Við vorum mjög daprir og það gekk illa að byrja leikinn. Eftir að við lendum 2-0 undir voru menn desperate að komast inn í leikinn en við vorum aldrei nógu góðir og það voru aldrei nógu góðir spilkaflar," sagði Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur eftir 3-0 tap gegn HK á Kópavogsvelli í dag.

Lestu um leikinn: HK 3 -  0 BÍ/Bolungarvík

,,Það var kafli í fyrri hálfleik þar sem við héldum þeim djúpt niðri á sínum helming, en tilraunirnar voru fáar og þær tilraunir sem komu nýttust illa, við vorum bara daprir."

,,Menn áttu að koma miklu sterkari, kannski sitja tveir síðustu leikir í mönnum, ég veit það ekki. Menn eru þreyttir en engu að síður hefur þetta verið saga sumarsins. Þegar við lendum í leikjum þar sem við eigum að geta sótt til sigurs eru menn ekki rétt stemmdir og telja sig komast upp með að leggja ekki á sig þá vinnu sem til þarf og það var raunin í dag."

,,Ég veit ekki hvað það er, hvort menn haldi að þeir geti hlíft sér eða komist upp með minni vinnu. Í fyrri hálfleik skoppaði boltinn milli tveggja blárra skyrtna, þeir litu hvor á annan til að gá hvort hinn ætlaði ekki að gera eitthvað. Svo kom hvít skyrta inn á milli og tók af skarið og hirti af mönnum. Ef þú ætlast til þess að einhver annar vinni vinnuna þína inni á vellinum þá gerast þessir hlutir sem gerðust í dag."


Nánar er rætt við Guðjón í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner
banner