Steven Lennon var hetja Framara þegar hann skoraði öll þrjú mörkin í 3-1 sigrinum gegn Val í Pepsi deild karla í kvöld. Hann var að vonum ánægður með sigurinn.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 1 Valur
„Þetta var mjög góður leikur, þetta var það sem við þurftum að gera. Ég vissi að þetta væri leikur á milli erkifjenda, strákarnir sögðu mér að það hefðu nokkrir menn verið reknir út af í vetur. Þetta var erfiður leikur en við höfum staðið okkur vel á æfingum í vikunni og þjálfarinn breytti uppstillingunni aðeins,“ sagði Lennon við Fótbolta.net.
„Gegn Stjörnunni vorum við óheppnir þannig að það var mjög gott að fá stigin þrjú í þessum leik. Við spiluðum vel og nú verðum við bara að halda áfram að spila á þessu plani og trúa því að við getum haldið sæti okkar í deildinni. Við getum ekki fagnað þessum sigri of lengi, við þurfum bara að njóta þess í kvöld og leggja okkur fram á æfingum í næstu viku.“
Steven skoraði einnig gegn Stjörnunni í síðasta leik og bætti þremur mörkum í safnið núna. Hann viðurkennir að hann sé ánægður með að geta skorað en að það sé ekki einungis honum að þakka að vel hafi gengið í kvöld.
„Það er gaman að skora mörk en þetta er ekki bara ég sem er að gera vel. Allt liðið gerði mjög vel, ég þarf bara að halda áfram að nýta færin ef strákarnir ná að skapa eitthvað fyrir mig. Vonandi get ég skorað og við haldið áfram að vinna leiki.“
























