,,Það verður að semja við þessa samningslausu, það er nauðsynlegt. Þetta var fyrsta lotan okkar í samningum, það er ágætt að klára það núna. Það eru tvær eldri og reyndari og tvær ungar og efnilegar sem skrifa undir núna. Við vildum byrja á því áður en við förum í næsta skref," sagði Jón Páll Pálmason þjálfari Fylkis við Fótbolta.net.
Fylkir hafði þá gengið frá samningum við Önnu Björg Björnsdóttur, Kristrúnu Kristinsdóttur, Huldu Sigurðardóttur og Evu Núru Abrahamsdóttur en verða breytingar á hópnum?
,,Það verða ekki miklar breytingar en við ætlum að fá nokkur ný andlit til að styrkja liðið. Ég get ekki sagt nein nöfn en get sagt að við erum með öngla úti og að vinna í að styrkja liðið því við viljum taka skrefið fram á við koma liðinu okkar ofar í töfluna en það hefur verið."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
























