Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 08. október 2009 12:22
Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Mete í Hauka (Staðfest) - Andri framlengdi
Guðmundur Viðar Mete er genginn til liðs við Hauka.
Guðmundur Viðar Mete er genginn til liðs við Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Andri Marteinsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við Hauka um að þjálfa liðið áfram en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi rétt í þessu. Við sama tilefni var staðfest að Guðmundur Viðar Mete væri genginn til liðs við félagið frá Val.

Guðmundur Viðar Mete kemur frá Val þar sem hann lék nýliðið tímabil eftir að hafa áður verið hjá Keflavík. Hann er miðvörður og kemur án efa til með að styrkja Hauka vel og leysir væntanlega stöðu Þórhalls Dan Jóhannssonar sem er hættur.

Guðmundur Viðar Mete hafði leikið í Svíþjóð lengi framan af ferli sínum en gekk til liðs við Keflavík sumarið 2005.

Þar var hann allt þar til síðasta vetur þegar hann samdi við Val og náði aldrei að festa sig í sessi þar, meðal annars vegna meiðsla. Hann lék 12 leiki fyrir Val í Pepsi-deildinni í sumar.

Andri Marteinsson hefur þjálfað hjá Haukum undanfarin átta ár, fyrst í yngri flokkum en fór svo í meistararflokkinn. Hann stefndi alltaf á að halda áfram með Hauka og staðfesti það svo með því að skrifa undir samninginn í hádeginu.

Slapp
banner
banner