,,Hann hefði getað verið stærri," sagði Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður U21 árs landsliðsins í samtali við Fótbolta.net eftir 2-1 sigur í fyrri leik liðanna í umspilinu.
Gylfi átti góðan leik og lék vinstri bakvörðinn oft grátt.
,,Það tók okkur smá tíma að jafna okkur eftir markið en við komum til baka eftir að Jói hitti á markið í fyrsta sinn í langan tíma þá spiluðum við vel og hefðum getað skorað tvö þrjú í viðbót."
,,Bakvörðurinn var í bullinu, hann var í ruglinu í fyrri og seinni hálfleik og mér fannst Jói eiga góðan leik og hægri bakvörðurinn var ekki sérstakur."
Jóhann kallaði þá inn í viðtalið en Gylfi segir hann kaupa allt það sama og Gylfi gerir.
,,Hann kaupir allt það sama og ég, sama veski, sömu heyrnatól og sömu tösku og ég. agalega vitlaus," sagði Gylfi í samtali við Fótbolta.net.
Nánar er rætt við Gylfa í sjónvarpinu hér að ofan.























