Magnús Már Einarsson skrifar frá Edinborg
Hólmar Örn Eyjólfsson og Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmenn U21 árs landsliðsins, eru í leikbanni gegn Skotum í síðari umspilsleik liðanna um sæti á EM.
Hólmar og Skúli eru mættir til Edinborgar í Skotlandi til að horfa á leikinn og Fótbolti.net heyrði í þeim hljóðið rétt fyrir leik.
,,Við erum orðnir vel stressaðir. Þetta verður örugglega mjög erfitt en við höfum trú á að strákarnir klári þetta," sagði Skúli.
Hólmar Örn er líkt og Skúli bjartsýnn á að íslenska liðið nái að komast áframþ
,,Við erum með mun betra lið eins og sást í fyrri leiknum og ef ekkert stórt gerist þá erum við að fara að klára þennan leik," sagði Hólmar.
,,Ég er búinn að vera stressaður síðustu daga. Það er miklu erfiðara að vera hér og gera ekki neitt heldur en að spila."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























