Ragnar Sigurðsson varnarmaður íslenska liðsins var að vonum svekktur eftir 1-3 tap gegn Portúgölum hann er þó sannfærður um það að það megi gera betur.
,,Ég veit ekki hvort ég sé sáttur, við vissum að þeir yrðu með meira með boltan og þetta yrði erfitt fyrir okkur. Þeir skora þarna með tveim langskotum og svo eitt klaufamark en þeir voru ekkert að skapa það mikið annars. Það má alltaf gera betur," sagði Ragnar við Fótbolta.net eftir leik.
,,Við erum líka með góða menn og hefðum getað skapað meira en við gerðum, við fengum hálffæri sem féllu ekki með okkur en við getum alltaf gert betur."
,,Það skiptir engu máli hversu vel við spilum ef við fáum 0 stig það er betra að spila illa og fá einhver stig ég veit ekki hvernig stemningin er en við verðum að rífa okkur upp fyrir næsta leik, er það ekki Kýpur, verðum bara að vinna þá," sagði Ragnar að lokum en nánar er rætt við Ragnar í sjónvarpinu hér að ofan.























